Archive Page 3
Nýtt HST prógramm Helga og Dóra
Við Dóri erum á fullu í ræktinni og þetta er nýja prógrammið …. VIBBI.
| Legs Squat – 1×10 Stiff Leg Deads – 2×10 |
Legs Squat – 1×10 Stiff Leg Deads – 2×10 |
Legs Squat – 1×10 Stiff Leg Deads – 2×10 |
Legs – 9 | ||
| Chest Incline Bench – 2×10 Dips – 1×10 |
Chest Incline Bench – 2×10 Dips – 1×10 |
Chest Incline Bench – 2×10 Dips – 1×10 |
Chest – 9 | ||
| Back Chins – 2×10 (W.N.) Rows – 2×10 (W.N) |
Back Chins – 2×10 (W.N.) Rows – 2×10 (W.N) |
Back Chins – 2×10 (W.N.) Rows – 2×10 (W.N) |
Back – 12 | ||
| Traps Shrugs – 1×10 |
Traps Shrugs – 1×10 |
Traps Shrugs – 1×10 |
Traps – 3 | ||
| Shoulder Shoulder Press – 1×10 Lateral Raise – 1×10 Rear Delt – 1×10 |
Shoulder Shoulder Press – 1×10 Lateral Raise – 1×10 Rear Delt – 1×10 |
Shoulder Shoulder Press – 1×10 Lateral Raise – 1×10 Rear Delt – 1×10 |
Shoulder – 9 | ||
| Biceps DB Curls – 2×10 |
Biceps DB Curls – 2×10 |
Biceps DB Curls – 2×10 |
Biceps – 6 | ||
| Triceps Tricep Ext. – 2×10 |
Triceps Tricep Ext. – 2×10 |
Triceps Tricep Ext. – 2×10 |
Triceps – 6 | ||
| Calves Calf Raise – 2×10 |
Calves Calf Raise – 2×10 |
Calves Calf Raise – 2×10 |
Calves – 6 | ||
| Abs Crunches – 2×10 (Or Pick Your Own) |
Abs Crunches – 2×10 (Or Pick Your Own) |
Abs Crunches – 2×10 (Or Pick Your Own) |
Abs – 6 |
Filed under: hreyfing og heilsurækt | 4 Comments
Ljósmyndasíðan mín
Hafiði séð auglýsinguna frá Skýrr. Skýrr ELSKAR Microsoft. Skýrr og Microsoft eru par.
Þetta er eins með mig og myndaþjónustuna Flickr.com
Helgi ELSKAR Flickr, Helgi og Flickr eru par.
Ég hef verið að nota þessa síðu núna í tæp 3 ár og keypt mér reglulega “pro user” account á hana því hún er algjörlega þess virði. er með slóðina http://www.flickr.com/helgimyndir en hér fyrir neðan er slideshow úr því. Bara lítið dæmi um hvað þetta kerfi býður uppá.
Filed under: Nýjar myndir | Leave a Comment
Karlatímarit

Þetta er til dæmis dæmi um klassa karlatímarit. Enda væri ég alveg til í áskrift.
Undanfarið hef ég eytt mörgum stundum á biðstofum. Biðstofu hjá ljósmóðurinni, biðstofu í mæðravernd, biðstofu í sónar, biðstofu eftir því að panta tíma til tannlæknis, biðstofu vegna bílaviðgerða og á þeim öllum hef ég verið að pæla svoldið í tímaritunum sem eru í boði.
Sko. Það er FULLT til af kellingarblöðum. Nýtt líf, Vikan, Hús og Híbýli, Gamalt líf og hvað þetta heitir allt og ekki nema furða að við kallarnir hugsum stundum að það sé bara ekkert svona til fyrir okkur.Það er í raun svoldið svoleiðis. Enda er held ég líka bara erfiðara að höfða til stráka í svona blaði þar sem að við höfum ekki jafn mikið af sameiginilegum áhugamálum og stelpurnar. Ef það er fjallað um e-ð sniðugt nýtt rakakrem eða dót sem tengist útliti og fötum þá eru stelpur nánast undantekningalaust til í að lesa um það. Við erum hinsvegar sumir til í að lesa um nýtt svarthol sem var verið að uppgötva, aðrir um nýjasta iPhone símann, enn aðrir um e-a rokkgítara og hinir um nýjustu vélina í Hondunni.
Ég datt hinsvegar inná þetta um daginn
http://www.askmen.com og komst að því að þetta var svona NETTÍMARIT fyrir kalla.
Sneddí ! Þarna er allt sem maður þarf. Tækni og vísindi, fótbolti og íþróttir, bílar og torfærur, konur og brjóstahöld og meiraðsegja smá karlrembuhúmor ef maður fær ekki nóg af testósteróni.
Tékk it át !
Filed under: Hugleiðingar um hitt og þetta, hreyfing og heilsurækt | 2 Comments
Ævintýri lífsins
Fólk hefur bæði heyrt, og sagt, að enginn verði samur eftir að hann eignast barn
Ég get núna hætt að heyra það og farið að segja það
Þegar að litla barnið manns kemur í heiminn er alltíeinu eins og heimurinn snúist við, alltíeinu skipta hlutir sem áður skiptu litlu máli, öllu máli og öfugt. Maður hættir að hugsa fyrst um sjálfan sig og skyndileg getur maður glaðst yfir litlu hlutunum sem að maður jafnvel tók ekki eftir áður. Ég veit að þetta hljómar frekar e-ð … en mér er samt líka svo yndislega sama
Ég er orðinn pabbi og ég elska það. Ég elska litla strákinn minn. Ég elska lífið
Filed under: Fjölskyldan | 2 Comments
Drengur Helgason
…fæddist þann 27.október 2009. Ég hef engin orð til að lýsa því hvernig manni líður að eignast svona yndislegt barn. Stoltur, hamingjusamur og þakklátur eru eitthvað í áttina.
Hér er mynd af honum. Hverjum er hann nú líkur

Filed under: Fjölskyldan | Leave a Comment
Life’s greatest miracle
Datt inná þetta frábæra video úr smiðju NOVA snillinganna.
Mæli eindregið með þessum skemmtilega fræðsluþætti sem er frír á netinu. Svo er líka þátturinn um víddirnar álíka góður.
Filed under: Vídjó | Leave a Comment
Að frétta úr framlínunni

Jæja þá eru prófin búin. Sveimér þá ég held að þetta hafi bara gengið. En það á samt eftir að koma í ljós. Gekk vel í lífeðslifræðinni en er ekki jafn viss með siðfræðina og innganginn. Fæ væntanlega einkunnir eftir 2 vikur. Það sem er helst að frétta er samt að nú eru bara 2 vikur og 4 dagar í settan dag sem er 24 október. Tíminn flýýýgur by og við Elísabet erum orðin svo geeeðveikislega spennt
Ég byrja í anatómíunni í dag, við sjúkrþjálfunarnemarnir verðum með læknanemum í tímum fram að jólaprófum í anatómíú og svo fósturfræði. Þetta er spennandi. Ég var einmitt að kaupa mér bók af Amazon sem heitir Physiotherapists pocketbook og er algjör snilld. Allt sem maður þarf að vita svona í lítilli bók.
En jæja, ég sit hérna frammi og ætla að koma mér í ræktina, kvið og bak tími í Laugum. Ég er búinn að vera helvíti duglegur ásamt Halldóri Smárasyni að taka mig á í ræktinni og ætla að halda því áfram. When the going gets though, the tough get going.
var það ekki einhvernveginn svoleiðis….
En jæja.. Eins og ég sagði einu sinni alltaf. I’m off!
Filed under: Hugleiðingar um hitt og þetta, hreyfing og heilsurækt, sjúkraþjálfun | Leave a Comment



















