um mig

Ég heiti Helgi Þór. Ég er fæddur árið 1986 í Reykjavík en flutti víða á yngri árum. Hef meðal annars búið á Egilsstöðum, Bolungarvík, Keflavík og Ísafirði en móðurfjölskyldan mín kemur að miklu leyti frá Suðureyri.

Ég varð stúdent frá Menntaskólanum við Hraðbraut sumarið 2009 eftir að hafa tekið góða pásu frá menntaskólanámi til þess að leita á vit ævintýrra á borð við Idol stjörnuleit og annarra spennandi verkefna.

Ég og Elísabet unnustan mín eignuðumst okkar fyrsta barn, yndislegan son þann 27.október 2009

Ég hef alltaf lifað lífinu á ferðinni, hef mikinn áhuga á öllu sem viðkemur íþróttum, útivist og hreyfingu. Hjóla mikið, hleyp og reyni að komast á fjöll. Sund, golf, fótbolti og skíði eru líka allt hlutir sem líklegt væri að sjá mig stunda.

Ég stunda nám í Sjúkraþjálfun í HÍ :)