Karlatímarit

04nóv09

Þetta er til dæmis dæmi um klassa karlatímarit. Enda væri ég alveg til í áskrift.

Undanfarið hef ég eytt mörgum stundum á biðstofum. Biðstofu hjá ljósmóðurinni, biðstofu í mæðravernd, biðstofu í sónar, biðstofu eftir því að panta tíma til tannlæknis, biðstofu vegna bílaviðgerða og á þeim öllum hef ég verið að pæla svoldið í tímaritunum sem eru í boði.

Sko. Það er FULLT til af kellingarblöðum. Nýtt líf, Vikan, Hús og Híbýli, Gamalt líf og hvað þetta heitir allt og ekki nema furða að við kallarnir hugsum stundum að það sé bara ekkert svona til fyrir okkur.Það er í raun svoldið svoleiðis. Enda er held ég líka bara erfiðara að höfða til stráka í svona blaði þar sem að við höfum ekki jafn mikið af sameiginilegum áhugamálum og stelpurnar. Ef það er fjallað um e-ð sniðugt nýtt rakakrem eða dót sem tengist útliti og fötum þá eru stelpur nánast undantekningalaust til í að lesa um það. Við erum hinsvegar sumir til í að lesa um nýtt svarthol sem var verið að uppgötva, aðrir um nýjasta iPhone símann, enn aðrir um e-a rokkgítara og hinir um nýjustu vélina í Hondunni.

Ég datt hinsvegar inná þetta um daginn

http://www.askmen.com og komst að því að þetta var svona NETTÍMARIT fyrir kalla.

Sneddí ! Þarna er allt sem maður þarf. Tækni og vísindi, fótbolti og íþróttir, bílar og torfærur, konur og brjóstahöld og meiraðsegja smá karlrembuhúmor ef maður fær ekki nóg af testósteróni.

Tékk it át !



One Response to “Karlatímarit”  

  1. 1 Bjartmar

    Þetta er vefrit karlatímaritsins GQ.


Leave a Reply