Ævintýri lífsins
02nóv09
Fólk hefur bæði heyrt, og sagt, að enginn verði samur eftir að hann eignast barn
Ég get núna hætt að heyra það og farið að segja það
Þegar að litla barnið manns kemur í heiminn er alltíeinu eins og heimurinn snúist við, alltíeinu skipta hlutir sem áður skiptu litlu máli, öllu máli og öfugt. Maður hættir að hugsa fyrst um sjálfan sig og skyndileg getur maður glaðst yfir litlu hlutunum sem að maður jafnvel tók ekki eftir áður. Ég veit að þetta hljómar frekar e-ð … en mér er samt líka svo yndislega sama
Ég er orðinn pabbi og ég elska það. Ég elska litla strákinn minn. Ég elska lífið
Filed under: Fjölskyldan | 2 Comments







Þú ert svo sætur. Þarf að heyra í þér, langar að kíkja á ykkur um helgina ef þið verðið heima ?
Já oo endilega. Kíktu við. Við verðum sko pottþétt heima. Vertu velkominn
AANYTIME