Að frétta úr framlínunni

Jæja þá eru prófin búin. Sveimér þá ég held að þetta hafi bara gengið. En það á samt eftir að koma í ljós. Gekk vel í lífeðslifræðinni en er ekki jafn viss með siðfræðina og innganginn. Fæ væntanlega einkunnir eftir 2 vikur. Það sem er helst að frétta er samt að nú eru bara 2 vikur og 4 dagar í settan dag sem er 24 október. Tíminn flýýýgur by og við Elísabet erum orðin svo geeeðveikislega spennt
Ég byrja í anatómíunni í dag, við sjúkrþjálfunarnemarnir verðum með læknanemum í tímum fram að jólaprófum í anatómíú og svo fósturfræði. Þetta er spennandi. Ég var einmitt að kaupa mér bók af Amazon sem heitir Physiotherapists pocketbook og er algjör snilld. Allt sem maður þarf að vita svona í lítilli bók.
En jæja, ég sit hérna frammi og ætla að koma mér í ræktina, kvið og bak tími í Laugum. Ég er búinn að vera helvíti duglegur ásamt Halldóri Smárasyni að taka mig á í ræktinni og ætla að halda því áfram. When the going gets though, the tough get going.
var það ekki einhvernveginn svoleiðis….
En jæja.. Eins og ég sagði einu sinni alltaf. I’m off!
Filed under: Hugleiðingar um hitt og þetta, hreyfing og heilsurækt, sjúkraþjálfun | Leave a Comment







No Responses Yet to “Að frétta úr framlínunni”