Líður að prófum….
27sep09
Jæja, endalaust get ég rausað hérna inn um allt og ekkert. Ég sit hérna heima núna á fullu í prófalestri en ég er að fara í lokapróf núna í vikunni vegna þess að læknadeild ákvað að það væri svo sniðugt að kenna í lotum. Sjálfum finnst mér þetta þrælfínt fyrirkomulag svosem en samt pínu stressandi að vera í lokaprófum margoft yfir veturinn.
Ég er að fara í lífeðlisfræði og inngang að sjúkraþjálfun & siðfræði. Massa lífeðlisfræðina en hef meiri áhyggjur af hinu. En við sjáum hvað setur. Maður á svosem ekki að þora að vera með neinar yfirlýsingar
En jæja! Nýjasti þátturinn af Grey’s er búinn í downloadi og ég og Beta ætlum að setjast og glápa!
Læt ykkur vita hvort 007 deyr eða ekki. Nei djók. Jú samt ekki. Eða.. Kemur í ljós.
Filed under: Hugleiðingar um hitt og þetta | 1 Comment







Það besta við lotukennslu er að losna við jólaprófastress.