Davíð Oddsson ritstjóri Mogganns
21sep09
Er þetta ekki ÖÖÖÖÖÖÖrugglega djók.
Bara að vera viss. Fyrst var ég alveg 100 á því að það væri verið að fífla mann en núna læðist að mér ljótur grunur ?

Erum við að tala um að þetta sé í alvöru e-ð sem menn myndu gera. Að fá alræmandan pólitískan leiðtoga í stjórn annars af 2 stórum fréttamiðlum á íslandi. Mér finnst þetta jafn fáránlegt og að setja glæpon sem yfirlögreglustjóra. Ekki að ég sé að segja beint að Davíð sé glæpon, þó það sé umdeilt, heldur aðallega að politík og ,,frjálsir” fjölmiðlar mega ekki vera svona samofnir.
Filed under: Hugleiðingar um hitt og þetta | 2 Comments
Tags: davíð oddsson, davíð og morgunblaðið, grín, morgunblaðið, pólitík, seðlabankinn, sjálfstæðismenn







Morgnublaðið hefur alltaf verið safnaðarrit Sjálfstæðisflokksins og fyrst nýir eigendur gátu losað sig við farsælan ritstjóra sem hafði starfað á blaðinu í áraraðir (m.a. sem aðstoðarritstjóri Styrmis) vegna mismunandi skoðanna – hvejru er þá ekki að trúa uppá þá?
Nei nákvæmlega. Ég trúi þessu nefnilega alveg. Ég bara trúi ekki að ég trúi þessu. Mér finnst þetta svo sorgleg þróun á svona litlu landi þar sem svo fáir fljölmiðlar starfa. Maður neyðist til að fara á Reuters og lesa undir World News um ísland í framtíðinni.