Jæja þá tekur alvaran við á morgun. Ég er að byrja í fyrstuverknámskynningunni og fer með henni Hildi í sjúkraþjálfunarstöð hér í bæ til að fylgjast með og observera :)

Mér líst bara mjög vel á þetta enda topp fólk þessir sjúkraþjálfarar hvar sem þeir eru (vonandi ;) Reynslusagan, góð eða slæm, verður svo látin flakka hérna í kjölfarið.

Annars lærði ég nokkur góð ný orð í anatómíunni í dag.    “Crista supraepicondilaris lateralis”  er til dæmis dæmigerð brún lateralt á humerus rétt fyrir ofan capitulum humeri. Ég meina. Hver veit það ekki !?

Læt svo fylgja mannshöfuð sem er skorið í tvennt svona í tilefni dagsins.

head



No Responses Yet to “Verknám á morgun”  

  1. No Comments Yet

Leave a Reply