Skemmtilegt dót
Það er margt til í þessum heimi. Fullt af græjudóti sem sumir kalla óþarfa en aðrir nauðsyn. Mín skoðun er sú að maður komist nú afskaplega auðveldlega af án þess að eiga nokkra svona velmegunarhluti en þeir eru hinsvegar til þess fallnir að auka á hamingjuna ef að jarðvegurinn í kring er í lagi. Heilbrigð peningamál, góð og örugg fjölskylda og tengls við börnin manns eru auðvitað e-ð sem skiptir mun meira máli í því að viðhalda brosi á vör og eru þá peningamálin þar innifalin vegna þess að öll þurfum við jú að eiga þá, við bara gerum það í mismiklu magni.
Þar sem ég er búinn að liggja hérna núna heima með það sem að allir virðast halda að sé Svínaflensa í núna 5 heila daga þá fór ég virkilega að sakna allra “græjudóts” hlutanna minna sem ég hef varla fengið tækifæri til að nota. Mikið af þessum hlutum tengjast útivist og íþróttum enda er það klárlega mitt aðal áhugasvið en ljósmyndun og tölvunjöllismi er ekki langt undan. Þetta eru nokkrir af þeim hlutum sem ég nota nánast daglega og suma þó aðeins nokkrum sinnum í viku.

Asusinn hefur reynst mér vel þar til hann bilaði um daginn. Hemmi er með hana í tilraunarviðgerð en þetta kemur í ljós...

Þetta reiðhjól er án efa einhver allra bestu kaup sem ég hef gert á ævi minni. Þá ekki verðsins vegna heldur notagildisins. Sé ekki eftir KRÓNU !!

Ég er að leita að þessum. Zen Stone Plus spilarinn minn sem ég ELSKAÐI svo mikið en finn ekki. Let me know!

Þessi vél var upphaflega keypt sem minnisfangari þegar að litli strákurinn okkar Elísabetar kemur í haust. Hún hefur gert mikið meira en það

Asics hlaupaskórnir koma manni hvert sem er. Nú þarf maður bara að standa við að hlaupa 5km á hverjum degi þegar manni batnar.

Klárlega besti bolti sem ég hef átt
Filed under: Hugleiðingar um hitt og þetta | Leave a Comment







No Responses Yet to “Skemmtilegt dót”