Einkaþjálfun

07júl09

Jæja ég lét verða af því. Pantaði mér stakann tíma hjá einkaþjálfara niðrí World Class á morgun. Ætla að fá hann Konna einkaþjálfara til að búa til fyrir mig gott plan svo ég geti tekið á því vel í sumar og fram á næsta vetur. Ætla að fara útí nýja hluti í æfingum þar sem ég ætla að leggja meiri áherslu á úthald, þol og styrk í sambland heldur en þessar massalyftingar alltaf hreint. Langar að taka fitness fílínginn á þetta. En þetta kemur í ljós :) veit allavega að ég verð duglegur að fylgja þessu eftir ;)

Er að vinna kvöldvaktir í þessari viku ALLA daga og báðar helgarnar. Smá törn í gangi. En þetta er fínt. :)



One Response to “Einkaþjálfun”  

  1. 1 Elísabet

    Þetta verður frábært! Þú verður orðin ofurkroppur svona í lok september þegar ég verð sem feitust :) haha


Leave a Reply