HÍ vs. HR
Jæja long time no blogg…
Alltíeinu fann ég þessa löngun til þess að byrja að skrifa aftur einhverja vitleysu á netið þar sem ég sat hérna niðrí Símanum að vinna enda svo margt sem er að gerast þessa dagana.
Það sem mér er ofarlegast í huga núna er jú auðvitað að ég er að fara að eignast lítinn strákaling í lok október og svo auðvitað er ég að fara að byrja í háskólanámi. En þar er einmitt vandamálið. Ég er ekki enn algjörlega ákveðinn í því hvað ég ætla að læra. Ég sótti um bæði í tölvunarfræði og heilbrigðisverkfræði í HR og komst inn í bæði mér til mikilar gleði. Hinsvegar sótti ég líka um í Sjúkraþjálfarann í HÍ og fór í inntökupróf sem ég fæ að vita niðurstöður úr núna í vikunni. Ef ég kemst þar inn þá er ég alveg lost. Þá þarf ég heldur betur að skrifa niður á blað kosti og galla og leggjast undir feld.
Þetta eru þó allt léttvægar áhyggjur af skemmtilegum hlutum og svosem lítið slæmt um þá að segja.
Ég ætla að skrifa meira um þetta allt saman fljótlega …..
Filed under: Hugleiðingar um hitt og þetta | 3 Comments






já, hæ! Fyrsta blogg síðan eftir Hrun (TM).
Gott að geta lesið eitthvað um þig hér drengsi. Spennandi að vita með Sjúkraþjálfarann
Hehe.. hvernig í ósköpunum
ertu alltaf að bíða spenntur eftir því að ég lifnaði við í bloggheimum!
já maður! Kíki daglega!!! í ár! .. nei, fyrir einhverjar rælni datt ég inn á bloggið í nótt