Hetjurnar okkar, allar!
Það var mikið um dýrðir í gær í miðbæ Reykjavíkur þegar að hátt í 50 þúsund mættu til að hylla “strákana okkar” eftir frækið Ólympíusigur. Bæði ömmur og afar, tælendingar og pólverjar og jafnvel túristar voru mættir með íslenska fána, hatta og boli og öskruðu hástöfum ÍSLAND! ÍSLAND!
Þetta er í fyrsta skipti sem ég get sagt að ég hafi fyllst ósviknu þjóðernisstolti. Að sjá öll þessi andlit, öll mætt til þess að sýna það í verki og brosi hver við erum og hvað við getum þegar við stöndum saman sem lítil eining. Lítil en samt svo stór og stolt þjóð hérna hjá okkur. Við erum svo sannarlega stórir fiskar í lítilli tjörn en tókst að fara yfir í stóra stöðuvatnið og koma sigursæl til baka.
Reyndar finnst mér að við eigum að vera duglegri að gera svona hluti eins og að fagna þegar vel gengur. Það voru auðvitað einhverjar raddir sem vildu meina að við hefðum gengið örlítið of langt og reyndar fékk ég PÍNU kjánahroll þegar að þyrlurnar mættu í heiðursfylgd, en samt, afhverju ekki. Afhverju megum við ekki vera smáborgarar og vera stolt af því.
Samt er þó eitt sem mér fannst miður í gær en það var að sjá til allra hinna hetjanna okkar sem komust alla leið á ólympíuleika en féllu svo gjörsamlega í skuggann af strákunum. Þegar að sundfólkið, badmintonstelpan og fleiri og fleiri voru kynnt til sögunnar í einum stórum hóp og skellt bakvið kórinn en sjúkraþjálfari, nuddari og andlegur stuðningsfulltrúi handboltahópsins kynntir inn með öskrum og látum einn fyrir einn þá fann ég örlítið til með hinum. Fyrst að við erum á annað borð að fagna, hvers vegna þá ekki að hylla líka hina, sem stóðu sig líka svo frábærlega, jafnvel þótt þeir hafi ekki komið til baka með silfur um hálsinn.
ÁFRAM ÍSLAND.
Filed under: Hugleiðingar um hitt og þetta | 4 Comments







Tótallí sammála! …En vá þetta var gaman! Ég elska að vera smáborgari:D
Já þetta er góður punktur hjá þér Helgi, hinir íþróttamennirnir stóðu sig vel þó ekki hafi þeir unnið til verðlauna, það er nú afrek út af fyrir sig að komast á ólympíuleikana.
Verst að hafa misst af þessu, ég sá þetta aðeins á vefnum en hugurinn var heima
Nú er ég strandaglópur í Minneapolis vegna lélegra þjónustu Northwest Airlines og kostar það mig daginn á morgun (föstudag) og svo auðvitað kvöldverðinum með YKKUR ÖLLUM… ég er svo fúll núna… en skilaðu kveðju, við sjáumst fljótlega heima
kv
Ingó
Nei í alvöru? … .við förum í þetta! Það þarf nú bara að fresta þessu.
Hehe nákvæmlega.. Þetta er sniðugt kerfi !!