“Mindless entertainment”
… er fyrirbæri sem hefur þekkst síðan menn muna og þýðist væntanlega yfir á íslensku sem ,,heilalaus afþreying”. Mér hefur hinsvegar fundist að ég seinni árum sé þetta gríðarlega einfalda form smátt og smátt að tröllríða öllu sem maður ákveður að taka sér fyrir hendur í dag.
Fyrir 10 árum síðan voru búnar til hörkuflottar hasar og ævintýramyndir þar sem maður keypti upp til agna allan söguþráðinn og manneskjurnar sem í honum voru útaf því hversu vel þær voru leiknar, skrifaðar og teknar. Undanfarið hef ég verið duglegur að fara í bíó á nokkrar svona spennumyndir ársins late 2007 og núna 2008 og mér finnst þær svona yfir heildina séð bara skugginn af því sem þær voru hérna í gömlu góðu dagana.
Myndir á borð við The Shawshank Redemption, Forrest Gump, The Green Mile og jafnvel Speed (eitt). … Það er eins og persónusköpun og tenging við persónur, söguþráður og nostur við smáatriði séu orðin einhverskonar aukaatriði í nútíma kvikmyndagerð svo lengi sem ILM sér um tæknibrellurnar.
Mér finnst ég samt þurfa að minnast á nokkrar frábærar myndir síðustu ára og má þar nefna t.d. Crash sem tók óskarinn í hittífyrra, algjör TOPPmynd. The Downfall (beinþýtt á íslensku væri NIÐURFALLIÐ en þýski titillinn Der Untergang myndi þýðast sem Niðurgangurinn) sem segir frá síðustu dögunum í lífi Hitlers er átakanleg og góð mynd sem gefur manni allt sem alvöru kvikmynd þarf að hafa og svo auðvitað Hotel Rwanda sem situr ennþá í manni !
![]()
![]()
Filed under: Hugleiðingar um hitt og þetta | 4 Comments







Vá ég er að fíla þetta WordPress útlit. Spurning að sjóða saman í eitt svona sjálfur. Gangi þér vel að blogga
Kv. Gunni
Þú og þitt blogg….
Jahérna hér. Ég er með fleiri favourites á bloggin þín en blogg annarra til samans
En annars er ég nokk sammála með kvikmyndirnar. Þetta er náttla ekkert nema fjöldaframleiðsla á green-screen myndum..
Skuggalegt hvað við fílum sömu myndirnar!