Velkominn

Velkominn á síðuna mína. Ég heiti Helgi Þór og er einkaþjálfari og sjúkraþjálfunarnemi. Ég hef mikinn áhuga á útivist, íþróttum og öllu sem viðkemur þjálfun og nota þennan vef til þess að halda utan um það sem er í gangi hjá mér hverju sinni.

Ég er í grunninn vestfirðingur en hef búið á höfuðborgarsvæðinu síðan ég var 17 ára gamall. Ég á einn lítinn, rúmlega eins árs gorm og er trúlofaður Elísabetu Heiðarsdóttur hjúkrunarfræðingi.

Ég var einn af þeim sem æfði fótbolta í 10 ár en hætti um 16 ára aldur þegar að álagið var orðið of mikið fyrir ungling með mörg áhugamál. Upp frá því má segja að ég hafi uppgötvað íþróttir uppá nýtt og síðan þá hef ég keppt í eða lagt stund á m.a. hjólreiðar, kraftlyftingar, sund, golf, körfubolta, júdó, handbolta, skák (það er íþrótt), fjallgöngur og sjósund.

Haustið 2009 hóf ég BS nám við læknadeild HÍ í Sjúkraþjálfun og haustið 2010 lauk ég svo einkaþjálfararéttindum frá NSCA í Bandríkjunum sem er ein virtasta einkaþjálfaragráða í heiminum. Ég hef lokið 14 tíma skyndihjálparnámskeiði frá Rauða Krossinum auk þess sem ég hef sótt fjölmörg námskeið tengdum þjálfun, heilsu og hreyfingu. Ég hef einnig haldið fyrirlestur um tengsl mataræðis og þjálfunar.

Réttindi, námskeið og reynsla:

  • NSCA-CPT (National Strength and Conditioning Association – Certified Personal Trainer) sem er ein virtasta einkaþjálfaragráða í heimi.
  • Er í námi í Sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands
  • Skyndihjálparnámskeið og AED
  • Advanced Core Training & Smarter Dynamic Warm-Ups.  -Nick Tumminello
  • Training during and after rehabilitation. -Eric Cressey
  • Power and speed & Athletic Essentials. -Dave Jack
  • Árareynsla af líkamsrækt og íþróttum

– Ferilskrá –